Danny Brown-Outer Space
Klikkaður skítur, beint frá Detroit.
Rapparinn Danny Brown gaf út aðra plötu sína XXX á síðasta ári. Platan er vægast sagt klikkuð, uppfull af brjáluðum rímum um einkar gróf málefni og brjálaðir taktar, í bókstaflegri merkingu orðsins.
Ýmislegt er áhugavert við Danny Brown, hann hræðist ekki að klæðast þröngum gallabuxum og er með últra klikkaða hárgreiðslu. Hann er líka 31. árs sem er nokkuð gamalt miðað við að hann vakti fyrst virkilega athygli á síðasta ári.
XXX er frábær. Fyrri tveir þriðjungarnir er einstaklega klikkaðir svo er síðasti þriðjungurinn mjög rólegur. Fyrri hlutinn er frábær en mjög ögrandi. Sá seinni er líka góður og mjög flottur og ferskur þrátt fyrir að hann sé frekar eðlilegur. Platan er ásamt Black Up með Shabazz Palaces besta hip-hop plata síðasta árs.